Hér er blogg

Ziþyz 5

12/07/2022

Plánetan Ziþyz 5 er friðsæl veröld. Þar búa viti bornar verur trilljónum saman í stórum fljótandi sambýlum. Þau fljóta á ammoníakhafi sem þekur plánetuna alla fyrir utan fjallgarð einn sem liggur eftir endilöngum miðbaug hennar og aðskilur norðurhafið frá suðurhafinu.

Umræður um fjárlagafrumvarp fóru fram í dag. Vitaskuld mikilvægt efni. En stundum hef ég bara ekki alveg tíma til að fjalla um slík mál. Því veldur fyrst og síðast sú staðreynd að ég sit ekki á þingi né er ég þingfréttaritari. Ég læt aðra um það. Fyrir það fá þeir víst greitt.

Dagurinn skríður út úr nóttunni rétt fyrir hádegi. Hallgrímur Helgason drullar yfir listmálarann Lucian Freud á Instagram í dag. Sakar hann um að hafa ekkert að segja. Hafa enga hugmynd.

Mínus eitthvað lítið á selsíus er hitastig loftsins í kvöld. Það er kyrrt og ferskt og ber með sér reyk úr strompi einhvers staðar.

Jólagjafafix

12/03/2022

Hugsanir mínar eru eftirfarandi: Horfnar eru lýsnar af höfði mínu. Ég hið minnsta finn ekki fyrir neinum lúsum. Var ég þó einhvern tímann með lýs? Ég man það ekki lengur. Um hvað snýst sólin? Sjálfa sig. Sjálfsumsnúandi eldhnöttur? Eða hvað, snýst hún yfir höfuð? Hvers höfuð? Ég nenni ekki að gúggla það.

Fiðrið af hænu tímans fýkur út í veðrið. Rauð viðvörun og allir vegir lokaðir. Niðri á höfn dorgar gamall maður af gömlum vana, ókalinn en veðraður af vindfrosti fyrri ára. Inni í honum er logn.

Í kvöld mætast árin og þá lítur fólk um öxl fyrir miðnætti og svo fram á við eftir miðnætti. Daginn eftir liggur það í rúminu með hálsríg. Fyrir því er forn hefð sem ég held fast í.

Hverakind

08/05/2020

Hársbreidd frá dauðanum, í hvítum gufumekki efst í grænum dal liggur spendýr og jórtrar. Með hálfopin augu tyggur það hálfmelta fæðu og lætur hvissið frá gufusteinum líða í gegnum sig. Líkt og frænka hennar fjörukindin, jú og vegakindin, jórtrar hverakindin á mörkum tortímingar og grænna engja.

Raggi
All rights reserved 2023 - allar ljósmyndir eru teknar af höfundi eða konu hans. Allur höfundarréttur á myndum og texta áskilinn.
Rafpóstur: larusson.ragnar hjá gmail.com 
Powered by Webnode
Create your website for free! This website was made with Webnode. Create your own for free today! Get started