Áramótakveðja 2020

Í kvöld mætast árin og þá lítur fólk um öxl fyrir miðnætti og svo fram á við eftir miðnætti. Daginn eftir liggur það í rúminu með hálsríg. Fyrir því er forn hefð sem ég held fast í.
Tökum létta upphitun og lítum um öxl.
Ég gríp það sem er hendi næst. Covid. Áraunir ársins (þessa raun-árs) voru fyrir mörg okkar meiri en við erum vön. Orðin tvö, samkomubann og fordæmaleysi voru þrykkt í heilabörk okkar fyrir lífstíð. Ný trúarbrögð spruttu fram með ferskri heilagri þrenningu, nýjum samskiptasiðum (einskonar siðaskiptum) og loforði um bjargvætt að utan. Sá nefnist Bóluefni (חיסונים). Ólíkt sumum bjargvættum annarra trúarbragða eru til áreiðanlegar sannanir þess að hinn nýi Bjargvættur sé til í raun og veru. Að hann sé raun-til. Að hann haf raun-gerst. Hann kíkti meira að segja við hérna um daginn og heilsaði upp á næstum því fimm þúsund manns og mætti í beina útsendingu sjónvarpsins. Þessi nýja trú er auðvitað ekkert ný. Hún er trúin á okkur sjálf og bjargvætturinn er ávöxtur þeirrar trúar.
Rennum svo augum fram á veginn.
Ég er bjartsýnn og von mín er sú að framtíðin beri í versta falli með sér samlokubann og besta falli algjört fordómaleysi.Þetta var fín upphitun. Takk og gangið varlega á hurð gleðilegs árs í kvöld.