Góða nótt
12/19/2022

Ég hef fært söguna um Þuríði Jórunni á plánetunni Ziþyz 5 yfir í "skáldleg skrif". Ég veit ekki af hverju ég hóf að rita þessa sögu í blogginu. Ég hefði átt að grípa fyrr í taumana, en svona fór það. Hegðun mín og athafnir eru oft og iðulega óslípaðar og hreint út sagt bara "einhvern veginn".
Jólin nálgast nú hraðar en þau hafa gert nokkru sinni fyrr. Ég er viss um það. Guð gefi mér styrk! Mér þætti fínt að ljúka þessu af sem fyrst. Ég er ekki í stuð fyrir jólaundirbúninginn. Ég er í stuði fyrir fátt í dag annað en að sofa. Að því sögðu legg ég til að ég drífi mig bara í háttinn. Góða nótt.