Rafskúta

10/24/2020

Skáldsaga


Raftónn skútunnar bergmálar í hrauninu við göngustíginn og þrátt fyrir hámarkshraða tuttugu og fimm kílómetra á klukkustund gef ég mér tíma til að dást að því. Sólskin og meðbyr ráða augnablikinu, Esjan situr á sínum stað og ég hef Arnarnesvog fyrir framan mig. Skútan nefnist Xiaomi Mi M365 og er tvö hundruð og fimmtíu vött. Keypt í Elko á fjörutíu og níu þúsund níu hundruð níutíu og níu krónur á hausttilboði.

Það er enn haust. Ég er í gömlum þröngum gallabuxum, svo þröngum að kalt loftið stingur í lærin, og svo gömlum að ég held ég hafi enn talið mig kúl þegar ég keypti þær. Ég er fyrir löngu læknaður af þeirri ranghugmynd. Ég veit nú að ég er ekki og verð aldrei kúl, og því var ekkert mál að taka skrefið og kaupa mér rafskútu. Mér er alveg sama hvernig ég lít út á henni. Eða er mér sama?

Talandi um nýju skútuna! Ég er hæstánægður með þetta nýfengna frelsi sem felst í að eiga rafskútu. Það er hvoru tveggja fjárhagslegt frelsi, því fáir fararskjótar eru hagkvæmari, og ferðafrelsi, því nú get ég þotið hvert sem er! Allt að þrjátíu kílómetra í senn!

Ekki má gleyma aðalatriðinu. Skútunni fylgir nefnilega skvetta af góðri samvisku yfir því að vera örlítið umhverfisvænni en áður. Þetta er nýjasta ranghugmynd mín og ég fóstra hana af alúð þessi misserin. Með skútunni fylgir einnig rétturinn til að pota því að í samtölum hvað maður er nú framarlega í þessum málum öllum.

Í þessu er ákveðið mótvægi við uppgjöf mína gagnvart kúlinu sem ég mun aldrei öðlast, en eltist of lengi við hér á liðnum árum. Mér finnst nú til dags auðveldara að þykjast vera umhverfisvænn en að þykjast vera kúl.

Meðvindurinn er góður og ég þýt í gegnum Sjálandið og stefni hraðbyr á Arnarneshæð. Við skólpdælustöðina kem ég auga á manneskju. Einhvern sem er í göngutúr. Ekki óvanaleg sjón svo sem. Sérstaklega ekki ef þetta er elliborgari, en þeir eru algengir í nágrenni við Sjálandið. Sjást oft þræða göngustígana í hópum, svona á milli klukkan níu og ellefu á virkum morgnum. Þetta er einmitt þannig morgun. En þetta er ekki elliborgari. Ég sé það nú. Þetta er yngri kona. Svona circa á mínum aldri.

Djöfull er kalt! Voru mistök að taka ekki strætó? Þetta gluggaveður gabbaði mig hrikalega. Heimspekin á bak við þessi rafskútukaup var að nota hana með strætó. Ég gæti drukkið kaffið mitt í makindum í vagninum og brunað svo restina af leiðinni upp á skrifstofu á skútunni og sleppt því að skipta um vagn.

Konan og ég nálgumst hvort annað. Í tvö hundruð og sjö metra fjarlægð sé ég að hún er eitthvað kunnugleg. Fortíðardraugur þarna á ferð. Ekkert merkilegur samt, bara stelpa sem ég var með í skóla í örfá ár. Ég veit hver hún er og hún veit hver ég er. Við erum að sjálfsögðu vinir á samfélagsmiðlum en ég man samt ekki eftir að hafa nokkurn tímann átt samtal við hana í raunheimum.

Ég er á hraðferð. Tuttugu og fimm kílómetra á klukkustund ef þið munið. En ég hef ekki séð stúlkuna í áratug, stúlkuna sem er nú orðin kona, rétt eins og ég er orðinn karl. Hæ! Hvað er að frétta? Gæti ég sagt. Það væri nú það minnsta sem ég gæti gert. Stoppað og spurt frétta. Sýnt áhuga. Ég væri alveg til í að vita hvað hún væri að sýsla. Hvar hún byggi og hvort hún ætti börn (má spyrja að því?). Ég gæti nú samt alveg flett þessum upplýsingum upp á Fésbók.

Allt í einu er ég mættur henni á stígnum og stari tómum augum á hana, djúpt sokkinn í þessar hugsanir um samtal sem gæti átt sér stað einmitt núna. Hún starir tómum augum á móti, en skyndilega fyllast þau lífi og það er greinilegt að hún þekkir mig. Ég ranka við mér og ég brosi samstundis asnalega og opna munninn en segi ekkert. Hún segir hæ! En ég er þá þotinn fram hjá á skútunni. Tuttugu og fimmkílómetrar á klukkustund. Xiaomi Mi M365. Ég verð víst bara að spjalla við hana betur næst. Eftir tíu ár.



Raggi
All rights reserved 2023 - allar ljósmyndir eru teknar af höfundi eða konu hans. Allur höfundarréttur á myndum og texta áskilinn.
Rafpóstur: larusson.ragnar hjá gmail.com 
Powered by Webnode
Create your website for free! This website was made with Webnode. Create your own for free today! Get started