Þuríður Jórunn á Ziþyz 5

Fréttaritari ríkisútvarpsins, Þuríður Jórunn Rúnarsdóttir, sem fór til borgarinnar Ozspolsísí á plánetunni Ziþýs 5 var komin með nóg. Tveggja daga þrotlausar tilraunir til að ná sambandi við heimamenn höfðu engan árangur borið. Þið getið rétt ímyndað ykkur ef þið væruð í sömu sporum í einhverri utanlandsförinni heima á Jörðinni. Ef til dæmis enginn myndi ansa ykkur í Kaupmannahöfn í tvo heila daga! En tveir dagar var einmitt galdurinn. Eftir nákvæmlega eða hér um bil fjörutíu og átta klukkustundir fékk Þuríður hugboð.
Þegar þetta gerðist sat hún ein á einhverju sem líktist steini innan um háhýsi Kúlogisanna. Enginn var á ferli, allir voru inni sofandi enda hábjartur dagur. En þrátt fyrir það læddist einhver tilfinning að henni, eins og hún væri ekki ein. Einhverskonar hugsun. Tilfinning samofin við hugsun, eins og títt er með hugsanir. Hún áttaði sig fljótlega á sérstöðu þessarar hugsunar. Einhver talaði til hennar. Talaði er kannski ekki nægilega lýsandi. Einhver hugsaði til hennar, eða nei, einhver stjórnaði hugsun hennar. Þó ekki á þann hátt að það stjórnaði gjörðum hennar. Hún sat áfram og veitti þessari hugsun alla sína athygli. Hugsunin var eitthvað á þá leið að tíminn er væri ekki réttur fyrir heimsókn. Hún ætti að koma seinna til Ozspolsísís.
En hvenær? Hugsaði Þuríður á móti.
Það kemur í ljós, var svarað. Farðu suður til Ozspolsísí 3 og bíddu frekari fyrirmæla.
Ozspolsísí 3?
Já, hún er suður af Ozspolsísí 2.