Þuríður spyr Kúlogisann

"Á meðan við bíðum eftir að ég verði sótt, mætti ég spyrja þig nokkurra spurninga? Ég er nefnilega fréttaritari Íslenska ríkisútvarpsins, RÚV, og er hér að vinna pistil fyrir síðdegisútvarpið á Rás tvö", sagði Þuríður Jórunn við Kúlogisann.
"Já, það máttu, en ekki búast endilega við góðum svörum. Við Kúlogisar notum ekki spurningar. Eina ástæðan fyrir því að ég skil hugtakið spurning er vegna þess, eins og ég sagði áðan, að við hökkuðum okkur inn í tölvuna þína," svaraði Kúlogisinn.
"En ef þið spyrjið engra spurninga í ykkar samskiptum hvernig aflið þið upplýsinga?" spurði Þuríður.
"Allar upplýsingar, gögn, öll þekking og viska sem við eigum til hér á Ziþyz 5 er öllum aðgengileg alltaf," sagði Kúlogisinn. "Það er ígildi þess að vita allt. Ég þarf ekki að spyrja að neinu því ég veit allt og allir aðrir Kúlogisar vita einnig allt."
"þannig að þú þarft bara að hugsa einhverja spurningu og þá "púff", færðu svarið?"
"Nei, eins og ég sagði, þá þurfum við ekki einu sinn að leggja fram spurningu því við einfaldlega vitum. Hvenær spurðir þú sjálfa þig hvað þú heitir? Þú veist hvað þú heitir. Allt sem ég hugsa og veit, hugsa aðrir kúlogisar og vita,"
"En bíddu nú aðeins hægur," sagði Þuríður og setti upp svip. "Þú sagðir áður að Kúlogisar væru mjög sjálfstæðir og einstaklingsmiðaðir."
"Rétt."
"En hvernig getur þú upplifað þig sem einstakling, ef allt sem þú hugsar og veist, hugsa aðrir og vita?"
"Ég skil ekki hvað þú meinar." svaraði Kúlogisinn.