Valentínus

Í gær fögnuðu landsmenn valentínusardeginum. Þá á ég við landsmenn þess lands sem mynda Bandaríki Norður-Ameríku. Þar sem ég er ekki samlandi þeirra fagnaði ég ekki. Ekki einu sinni í kyrrþey. Í staðinn fórum við hjón af bæ og sjoppuðum í Market Basket og má sjá afraksturinn á mynd hér að ofan. Full kerra af mat fyrir 204 dollara, eða ígildi circa 24 þúsund íslenskra króna. Ætli maður gæti fyllt heila kerru heima á fróni fyrir 24 þúsund? Jah, þegar stórt er smurt er fátt um smjör, eins og maðurinn sagði.
Í Market Basket gaf að líta ófáa karlmenn að versla blóm handa spúsum sínum. Þakkaði ég drottni fyrir að vera ekki undir þeim þrýstingi þann daginn að færa maka mínum deyjandi blóm til að setja í vatn.
Valentínusardagurinn virðist vera að dreifa úr sér um veröld alla. Í fyrra lífi, er ég bjó í fyrirmyndarríkinu Sverige, man ég eftir að blómasalar gerðu sitt besta til að framkalla samviskubit í sálartetrum sænskra karla með því að planta þeirri hugmynd í haus að það að kaupa plöntur sé góð leið til að sýna ást sína á þessum degi, sem er vissulega satt. Ég skal ekki neita því að blómin gleðja. Og svo síðast í gærkvöld sá ég frétt á RÚV um aukna sölu blóma á þessum degi heima á Íslandi.
Já, Bankaríkin ausa yfir okkur yndislegri menningu sinni. Valentínusardegi, hrekkjavöku, svörtum föstudegi og ég veit ekki hvað og jafnvel hvað. Þeir gefa og gefa og fagna ég þeirri fjölbreytni sem því fylgir. Ég er meðal annars fylginn því að flytja þakkargjörðahátíðina til Íslands. Þótt hátíð sú sé ef til vill byggð á umdeildum grunni þá er auðvelt að hundsa þann grunn og einblína á boðskap hennar eins og hann er í praxís, en sá boðskapur er að vera þakklátur fyrir það sem maður hefur og eyða gæðastundum með nánum. Ekkert flóknara en það.
Ættum við Íslendingar að launa könunum greiðann og flytja vestur um haf okkar konudag og bóndadag ásamt þorrablótum, öskudegi, bolludegi, sprengidegi, jónsmessu, Þorláksmessu og öðrum hátíðum sem ég er að gleyma. Á nægu er að taka vinir kærir.
Heimurinn er hneta, full af orku og lífsfjöri!