NÚTÍMALJÓÐ

Brestur
Ákveðin stöðutaka,
og samningsatriði.
Atriði í samningi.
Eitthvað grínatriði, skilst mér.
Ekki fyndið samt.
(ort 29.10.2020 kl. 04:19)
Af Stað
Af stað.
Af stað með smjörið.
Hátt, hátt, í loft.
Þar til ekkert er eftir.
Enginn metnaður.
Aðeins innantómt orðagrín,
og miðaldra karlmennska.
(ort 29.10.2020 kl. 04:14)
Október 2020
Húmið sígur í nóvembr.
Rúmfastar hugsanir.
Hvernig eyðir þú árum þínum?
Í vitleysu?
Rúmfastar hugsanir.
Hvernig eyðir þú árum þínum?
Í vitleysu?
Hvað á ég að gera í því?
Húmið rís í mars.
Ennþá rúmfastari hugsanir.
Styggðu ekki vökumenn.
Þeir gætu lamið mig.
Nótt í Reykjavík
Maður er nefndur Njáll.
Vænn og vinamargur.
Lögfróður.
Vinur hans er Gunnar.
Mikill og sterkur.
Blíður.
Einu hverju sinni
sitja þeir
og drekka að Njáls.
Margt tala þeir.
Vilja þeir nú út aka.
Ganga þeir eftir götu einni.
Koma þeir að öldurhúsi.
Ganga þeir inn.
Fagna þeir vinum.
Kaupa þeir bjór.
Stíga þeir dans.
Fara þeir heim.
Elskast þá um nóttina
og fram á morgun.
Sofa svo vært.
Hvor í annars faðmi.
(ort í janúar 2011)