Hér er blogg

Runninn er upp síðasti dagur ársins og með honum hinn síðasti séns að skrifa áramótakveðju fyrir árið í ár. Svona þannig séð. Það er í raun öllum sama. En hvað um það.

Pétursskip

12/22/2022

Skata skal það vera á morgun lagsmaður. Þvílíkur munaður að éta þetta dýr. Sérstaklega þegar það hefur verið dautt um hríð og fengið að rotna einhvers staðar í nokkrar vikur. Namm, namm og smjatt, smjatt. Maður fær vatn í munn.

Talning niður

12/21/2022

Frostið hefur hopað ögn. Snjóbræðslan á stéttinni hefur loks viðráðanlegt verkefni. Hvolpurinn hjálpar til og sprænir á klakann. Hann fann dauðan fugl um helgina. Það lifa ekki allir til jóla.

Góða nótt

12/19/2022

Ég hef fært söguna um Þuríði Jórunni á plánetunni Ziþyz 5 yfir í "skáldleg skrif". Ég veit ekki af hverju ég hóf að rita þessa sögu í blogginu. Ég hefði átt að grípa fyrr í taumana, en svona fór það. Hegðun mín og athafnir eru oft og iðulega óslípaðar og hreint út sagt bara "einhvern veginn".

Hann bauð henni að kafa með sér, það kæmi brátt nótt. Borgin vaknaði hægt og hljótt til lífsins er dagsljósið hörfaði. Ljós kviknuðu hér og hvar en Þuríður átti erfitt með að greina hvort það væri frá hýbílum Kúlogisana eða einhverju öðru því hún sá enga hreyfingu neins staðar. Sum ljósin mörkuðu brautir sem lágu úr ýmsum kimum borgarinnar og...

"Á meðan við bíðum eftir að ég verði sótt, mætti ég spyrja þig nokkurra spurninga? Ég er nefnilega fréttaritari Íslenska ríkisútvarpsins, RÚV, og er hér að vinna pistil fyrir síðdegisútvarpið á Rás tvö", sagði Þuríður Jórunn við Kúlogisann.

Ozspolsísí 3

12/10/2022

Þuríður Jórunn vissi ekki hvernig hún ætti að komast frá Ozspolsísí til Ozspolsísí 3. Hún átti að fá far frá Ozspolsísí aftur heim til Jarðar eftir aðra 48 klukkustundir og það var engin leið til að breyta því á nokkurn hátt. Engin leið til að hafa samband heim. Ekki innan 48 átta tíma. Skilaboð heim bárust eftir 72 klukkustundir...

Fréttaritari ríkisútvarpsins, Þuríður Jórunn Rúnarsdóttir, sem fór til borgarinnar Ozspolsísí á plánetunni Ziþýs 5 var komin með nóg. Tveggja daga þrotlausar tilraunir til að ná sambandi við heimamenn höfðu engan árangur borið. Þið getið rétt ímyndað ykkur ef þið væruð í sömu sporum í einhverri utanlandsförinni heima á Jörðinni. Ef til dæmis enginn...

Raggi
All rights reserved 2023 - allar ljósmyndir eru teknar af höfundi eða konu hans. Allur höfundarréttur á myndum og texta áskilinn.
Rafpóstur: larusson.ragnar hjá gmail.com 
Powered by Webnode
Create your website for free! This website was made with Webnode. Create your own for free today! Get started